Monday, March 06, 2006

Hætt þessu rugli

Jesússs minn ég er að missa mig í einlægninni. Ég biðst afsökunar og lofa að rífa mig upp úr ruglinu. Héðan í frá verða skrif mín hlaðin kaldhæðni, gríni, töffaraskap, bulli og vitleysu. Ekkert svona tilfinninga rugl og væl. Bara bull um beðmál, dans, trans, dóp, drykkju og rock n'roll. Jesss!
Er annars að hugsa um að hætta að drekka, hef ekki farið í sleik í háa herrans tíð, hvað þá fengið eitthvað í beðinu, aldrei dópað og dansa bara þessa dagana í stofunni heima þegar ég er að þrífa. Rock n'roll.

4 comments:

Anonymous said...

Nei gerðu, gerðu, gerðu, gerðu það ekki hætta.

Anonymous said...

sammála síðasta ræðumanni

Anonymous said...

sástu ekki eitthvað bitastætt í amor þegar þú varst á nfs. Allt í lagi að vera ein en ekki aðgerðasrlaus.

Hölt og hálfblind said...

Jú, margt mjög spennandi. Ég þorði bara ekki að versla með myndavélarnar yfir mér. Verð að drífa mig og versla eitthvað dót!