Tuesday, July 31, 2007

Mamma!

Ég flyt út 12.ágúst. Mikið svakalega hlakka ég til. Get þó ekki með góðu móti hugsað til þess ógrátandi.

Friday, July 27, 2007

Gott sumar

Hápunktur sumarsins hingað til var þegar ég sá Óla Stef spila körfubolta í Vesturbæjarlauginni. Það var sérlega góður dagur. Reyndi að mæna ekki mjög mikið á hann. Þóttist vera í sólbaði og reyndi að halda bjórbumbunni (sem hefur verið vel fyllt af gamla ísnum í sumar) í skefjum. Líka mjög gaman að sjá Dorrit í Bláa Lóninu. Ég þorði samt ekki að fara og tala við hana. Hefði líka bara stamað.