Tuesday, March 18, 2008

Þetta er ekki nógu gott og þó allt í lagi bara

Nördinn minn er ekki enn búinn að hringja. Nú bíð ég bara eftir fréttum um að hann eigi kærustu. Það er saga lífs míns. Það væri þó eitthvað nýtt ef hann reyndi ekki að sofa hjá mér fyrst. Bob Dylan er að spila á Íslandi þegar ég verð í Hollandi. Leonard Cohen verður að spila í Hollandi þegar ég verð á Íslandi. Ég fæ ekkert páskafrí og er að fríka út á skólanum. Annars er ég bara hress sko. Finnst frekar gaman að lifa.

3 comments:

Anonymous said...

Það eru allir frekar þunglyndir hérna heima vegna frjáls falls krónunnar þannig að þú ert allavega ekki að missa af neinu stuði hér sem stendur. Ekki nenni ég að fara á Bob Dylan en væri heldur betur til í að skreppa til Amsterdam!

Kveðja, Fanney

Anonymous said...

Ég er viss um að nördinn þinn situr við símann og bíður eftir símtali frá þér. Hringdu nú í hann.

Kveðja,
Jónína

Hölt og hálfblind said...

Ég er búin að hringja. Hann svaraði ekki.