Wednesday, March 12, 2008

Bubbi minn

Þegar ég var 12 ára tók ég Bubba á litlu jólunum í Varmalandi. Ég var klædd í ljósar rifnar gallabuxur, svartan ermalausan bol, með tóbaksklút á hausnum og mæmaði Lilli Marlene með Das Kapital. Nokkrir strákar tóku það að sér að vera hinir í hljómsveitinni. Tveimur árum síðar tók ég Axl Rose að syngja Paradise city. Þá var ég líka með tóbaksklút á hausnum í rifnum gallabuxum. Já ég var mikill töffari sem barn.

1 comment:

Anonymous said...

já löngum verið svöl, líkt og ótrúlega margir vinir þínir. Sannast það fornkveðna "Líkur sækir líkan heim".
Alda