Tuesday, March 11, 2008

angandi af dauðu dýri nei takk

Ég fer varla á stefnumót með mannréttinda dýraréttinda stjörnueðlisfræðingnum í splúnkunýjum leðurjakka framleiddum í Kína. Angandi af dauðu dýri æpandi þrælavinna þrælavinna. Nei ætli ég druslist ekki bara í gömlu kápunni. Sleppi líka Chanel gleraugunum. Hann stakk upp á að hittast í félagsheimili anarkista. Verð bara hálfblind. Slepp þó við að vera hölt þar sem ég nenni ekki að dröslast á hælaskóm með manni sem er varla hærri en ég þó ég sé á flatbotna. Fer í komfí skóm.

2 comments:

Anonymous said...

:) þetta var sko ég, Sigrún systir sem brosti svona fínt yfir þessari færslu þinni

Anonymous said...

Gangi þér vel á stefnumótinu.

Kveðja,
Jónína