Wednesday, November 21, 2007

Svona gengur þetta hróin mín

Ég er að hlusta á Led Zeppelin. Djöfull er það gott stuð. Er að fara á barinn á eftir að hitta skólafélagana. Nenni því ekkert. Langar miklu frekar að vera heima með kerti og te að prjóna og lesa Gestaboð Babette. Ég er ekki 21 lengur. Það er alveg ljóst. En maður verður nú að standa sig, fara út, drekka bjór, vera hress. Djöfull.

3 comments:

Anonymous said...

Það er nú gott að þú unir þér vel í höllinni þinni gæskan :)
Jóhanna

Unknown said...

Það er alveg merkilegt hvað maður getur sett undir sig hausinn og hleypt í sig mikilli hörku þegar maður "þarf" að fara á barinn ;-)

Anonymous said...

sæl og blessuð gunnhildur!
já, það kemur fyrir að maður "þurfi" að skemmta sér, en þannig er það bara.
tala nú ekki um þegar það er búið að yngja svo þvílíkt upp í itr starfsmannahópnum og nú eru næstum allir 21 og krafan ennþá meiri um að vera "fresh"...