Thursday, June 04, 2009

Ónei!

Ég fékk nýja flugu í höfuðið. Að kaupa mér bara miða aðra leiðina til Hong Kong. Fara eitthvert annað í Asíu í nokkra mánuði eftir að ég klára rannsóknina og kenna ensku. Kannski Sjanghæ. Tævan eða Víetnam. Nú eða vera áfram í Hong Kong. Árans flandur og vesen alltaf á mér! Ekki segja mömmu.

6 comments:

Hrólfur S. said...

Ég á mér þann draum að ferðast um Víetnam á mótorhjóli.

Dísa said...


Ég þekki slatta af Víetnömum. Gæti kannski reddað eitthverju;-)

Hölt og hálfblind said...

Í alvöru Dísa! Mig langar sjúklega til Víetnam. Spurðu hvort það sé auðvelt að fá vinnu við enskukennslu í Víetnam.

Fanney said...

Vietnam er aedi! Se thig alveg gera hondu-drauminn ad raunveruleika med Hrolfi.

Anonymous said...

það eru 4 Víetnamar að vinna hérna hjá okkur og ég skal rabba við þá.

Dísa said...

Þetta var Dísa systir að senda commentið þarna fyrir ofan:-)