Friday, January 18, 2008

Ekki seinna vænna en að fara að plana 31 árs afmælið

Ég verð 31 á árinu. Og ég er búin að redda hljómsveit fyrir afmælið. Eða það er, öllu heldur, hljómsveit búin að redda sér giggi í afmælinu mínu. Einhverjir gaurar sem ég þekki ekki neitt vilja ólmir spila af því þeir eru með lag sem fjallar um það að verða 31. Gaman að þessu, ég er strax farin að hlakka til.

3 comments:

Anonymous said...

Frábært. Svo þegar þeir verða spurðir að því hvar þetta hafi nú byrjað allt saman þá verður svarið: "í 31 árs afmælinu hennar Gunnhildar".

J

Anonymous said...

já frábært er manni ekki boðið í afmælið??

Hölt og hálfblind said...

Jú að sjálfsögðu er öllum boðið. 3 apríl 2008, einhversstaðar í Amsterdam.