Tuesday, February 05, 2008

Í giftingarhugleiðingum

Ég var að pæla, getur verið að Johnny Depp sé eini maðurinn í heiminum sem ég væri til í að ganga í hjónaband með? Hann er súperstjarna og giftur faðir. Steve Bucemi. Hann er svo gamall og ljótur að það getur ekki annað verið en að hann vilji giftast rétt tæplega fertugri fegurðardrottningunni mér. En nei nei hann er giftur líka kallinn. Djöh!

Óh Johnny


Hann er svo svalur og kynþokkafullur


Ég var að pæla hvort einhver væri til í að gefa mér þessa skó í fertugsafmælisgjöf. Þeir fást í KRON og kosta 20 þúsundkalla. Ég nota skó númer 36.

6 comments:

Anonymous said...

Sammála um fegurð Johnny og skónna en finnst hinn ekki svo kynþokkafullur og dressið er svalt.

Anonymous said...

Uhhm Fabio er á lausu!
-Þinn elskandi kærasti

Tinna said...

Þú kemur mér sífellt á óvart - notar skó númer 36 og finnst Johnny Depp sætur. Nei, hættu nú alveg.
Skil þetta með Steve betur, hann er svo ljótur að hann verður eiginlega sætur. 36??

Hölt og hálfblind said...

Fabio er ekki mín týpa Brynjólfur!
Jahá mér finnst Johnny sætur og kynþokkafullur og brilliant. Hann er svo sætur að hann bara er sætur.
Steve er svo brilliant að hann er sætur.
36, hversu vel þekkirðu mig Tinna mín?

Anonymous said...

já við eigum margt sameiginlegt gunnhildur mín. Er þér hjartanlega sammála um Johnny og Steve, báðir ómótstæðilegir! Ef einhver tekur þig trúanlega með skóstærðina og gefur þér skó nr 36 lætur þú mig bara hafa þá...
Alda

Anonymous said...

Gunnhildur mín. Takk fyrir bloggið þitt og innslögin. Væri dauð ef þetta lífgaði ekki uppá hversdagsleikann. Gæinn frá 30.jan hefur mikið gert fyrir mitt krád.
Danke (sagt með hrákuhreim)
Ása pjása