Friday, February 06, 2009

Föstudagskvöld og vika í valentínusardaginn

Og ég hangi heima í bleiku náttdressi, horfi á sjúklega lélegt amrískt sjónvarpsefni, þamba hvítvín og borða súkkulaðikex. Þetta gengur ekki. Ég á auðvitað að vera blindfull á barnum að þamba sjeníver og fara í sleik við strákana. Hollensk hávaxin sjarmatöll í ljósbláum skyrtum með mikið gel í hárinu.

2 comments:

Anonymous said...

þú og þínir sleikar

Hölt og hálfblind said...

Ha ha! Já það er svo gaman í sleik :D