Monday, December 15, 2008

Læra læra læra svo koma jólin

Ég hlakka svo til að fara heim og hitta alla. Byrjar vel. Partý, jólahlaðborð og afmælisboð innan 24 tíma frá því ég kem heim. Ég hlakka svo til að komast í sund. Jessúss minn. Synda, pottur, gufa. Fara í sveitina og borða hangikjet. Drekka kaffi og borða smákökur með mömmu. En fyrst þarf ég að læra fyrir próf og skrifa eina skýrslu. Nenni því ekki. Er þreytt, þurrausin. En bráðum koma blessuð jólin.

2 comments:

Anonymous said...

Ég hélt að þú værir að koma heim í dag - veit ekki hvaðan ég fékk það samt.
Could you inform me please. Hvenær er heimferð?
luv Fríða

Hölt og hálfblind said...

20. desember, jibbijolacola!