Og nú er ég lasin líka. Hvað lífið getur stundum verið pirrandi. Hausverkur og beinverkur aaaaaah! En stjörnueðlisfræðingurinn skrifaði allavegana aftur og vill endilega hitta mig. En ég meina maðurinn er grænmetisæta. Það er alltaf eitthvað.
Gulla kemur í heimsókn á fimmtudaginn. Þá ætla ég ekki að vera lasin og ekkert þunglynd heldur. Bara hress. Massahress.
2 comments:
Taka hugrænu atferlismeðferðina á þetta Gunnhildur mín...... :-) Þú kannt það er það ekki???? - segi svona. Muna bara - öll él styttir upp um síðir. Hjálp, ég er hætt... Kv. Ása Björk
Bubbi er snillingur.
Post a Comment