Wednesday, March 07, 2012
Hva er enginn að lesa, djísúss!
Er annars að hugsa um að fara og kaupa mér skó þó að ég hafi engan veginn efni á því.
Monday, March 05, 2012
Chewie og ég
Jú, ég get víst skrifað um ræktina. Fór í tíma í dag eftir að hafa náð að skrifa heila blaðsíðu í verkefninu mínu. Tíminn var svokallaður tabata tími sem er algert æði. Hann er æði af því að kennarinn er æði. Sykursætur unghommi, tágrannur og sjúklega sólbrúnn. Ofurhress í neonlitum íþróttabol. Spilar einhvert æðislega hallærislegt júrótekknó og Abba. Ég stóð sjálfa mig að því í tímanum í dag að mæna á hann þegar ég átti bara að vera að mæna á tærnar á mér eða eitthvert. Fylgja honum eftir hvert fótmál með augunum og renna þeim upp og niður hans langa líkama. En aðallega bara brosa að því hvað hann virðist hress og lífsglaður. Og brúnn. Ég hinsvegar. Já, ég! Mætti nokkuð hress. Hvítari en hvítt. Meira svona kannski út í grábleikfjólublátt einhvernvegin. Og komst að því, þegar ég var orðin nokkuð smekkleg í svörtum hlýrabol og hnésíðum jógabuxum að ég var loðnari en Chewbacca sjálfur.
Ekki það að þar er auðvitað ekkert leiðum að líkjast. Og mér finnst bara töff að vera með loðna leggi og með brúska undir höndum (svona smá, stundum, who cares) en ég er bara svo mikið hrædd um að ég hafi ofboðið kennaranum. Hann svona brúnn og pottþétt vaxaður á bringunni og allsstaðar. Trúlega er honum skítsama um mína loðnu. En ég ætla ekki að taka sjénsinn. Mæti í meira hyljandi fötum næst, síðum íþróttabuxum og stuttermabol ;)
Ekki það að þar er auðvitað ekkert leiðum að líkjast. Og mér finnst bara töff að vera með loðna leggi og með brúska undir höndum (svona smá, stundum, who cares) en ég er bara svo mikið hrædd um að ég hafi ofboðið kennaranum. Hann svona brúnn og pottþétt vaxaður á bringunni og allsstaðar. Trúlega er honum skítsama um mína loðnu. En ég ætla ekki að taka sjénsinn. Mæti í meira hyljandi fötum næst, síðum íþróttabuxum og stuttermabol ;)
Um hvað?
Mér finnst tæplega við hæfi að blogga lengur um ástarmálin, svo er heldur ekkert stuð í gangi þar. Ég bý bara á Íslandi og fer ekki á djammið lengur. Á ekki péníng fyrir skókaupum. Auðvitað alls ekki við hæfi að segja frá vinnunni minni eða námi á internetinu. Veit sem sagt varla um hvað ég ætti að skrifa. Bakstur og eldamennsku? Strætóferðir á Klepp (já, það er kannski eitthvað). Ræktina (nei, djöfullinn sjálfur). Sambýliskonurnar og nágrannarnir er auðvitað klassík. Ferðir í Kolaportið og lestur á tískublöðum. Shiiit ég lifi svo spennandi lífi! Þarf kannski að gera eitthvað í þessu bara. Drekka meira, baka og borða minna.
Thursday, March 01, 2012
Góður dagur til að ...
Ég byrjaði á ritgerðinni minni í dag. Jibbí! Þessum orðum ef orð skyldi kalla hef ég komið á blað: Cand. psyc. Ritgerð!!! Svo er ég bara að skoða blogg og hlusta á tónlist. Fer í leikfimi. Set á mig varalit og skoða nýja hárið mitt í speglinum og hugsa um það hvort ég eigi að lita það, kannski... góður dagur til að byrja að blogga?
Subscribe to:
Posts (Atom)